hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

föstudagur, júlí 04, 2008

Ég er...

- drekinn.
- sjálfmiðaður, ef marka má fyrirsögn færslunnar.
- eigandi flugmiða til Rómar, Reykjavíkur, Lundúna, Síattel og Vankúver :)
- að hlusta á Keane með bjór í hönd.
- með plástur á höndinni, þeirri sem ekki heldur á bjórnum.
- í sumarfríi.
- á leið á skólabekk í Árósum í haust.
- búinn að skrifa og flytja alltof margar fréttir, endurtekið efni, ár eftir ár, um fornleifauppgröft, stærstu ferðahelgi sumarsins, fylgi flokka, árlegt verkfall flugumferðarstjóra, hnífsstungur, ráðherrablogg, bensínverð, og sigra Íslendinga með minnimáttarkennd í útlöndum, svo fátt eitt sé nefnt.
- búinn að hitta Bjarna, Líf, Snorra, Dag, Tobbu, Nalda, Hilmi, Önnu, Stíg, og fleira gott fólk, undanfarna daga.
- mettur eftir daglegt ísát með Jódísi bróðurdóttur.
- með samviskubit yfir lesefni sem staflast upp hjá mér.
- á þeirri skoðun að nútímafólk gleymi að rækta hugann; rækti bara kroppinn.
- á leið á stefnumót með Susönnu á morgun, nýkominni frá Kabúl.
- í farsælli sambúð með Ólafsdóttur.
- nú þegar að velta vöngum yfir landkynningu sem ég þarf að flytja í haust. Er illa við fyrirbærið; held ég kynni Leoncie til leiks sem dóttur landsins bláa...

|