hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Eitt af því skemmtilegasta...

...sem ég geri er að máta gulrótarsnið af gallabuxum, helst tveimur númerum of litlar. Hef gert þetta í tvígang fyrir slysni og það bregst ekki að ég lek niður vegginn í búningsklefanum, grátandi úr hlátri, með buxurnar fastar á miðjum lærum - Þetta er reyndar ekkert snjallt fyrir fólk með fitukomplexa...

Hef það eftir móður minni að það eru forréttindi að geta leyft sér að hafa áhyggjur af bólunni á nefinu á sér. Það er nefnilega hægt að hafa alvöru áhyggjur af svo mörgu miklu stærra...

Annars er ég er að reyna að muna hvað mér finnst gaman. Mér finnst gaman í vinnunni og þar er ég flestum stundum. Hvað fannst mér aftur gaman, utan vinnunnar??? Einhver???

Við strákarnir héldum Pönnu fyrir nokkrum dögum hér á Hverfisgötunni. Sáum svo The Departed. Góð.

Vildi óska að ég væri ekki þannig gerður að verða að ljúka bók, þó hún sé léleg. Er sumsé farinn að lesa...

|