Ef það væri tengdur við mig þvagleggur væru afköst mín í vinnunni mun meiri. Kannski ég bendi þeim á að athuga þetta.
Orð dagsins er tír í merkingunni heiður og sæmd, samanber orðs-tír. Tírkunn tunga er til að mynda þekkt af því lofi sem hún veitir öðrum. Úbbs, leggjum í hann í Landmannalaugar á morgun, annað kvöld og ég á eftir að tína mig saman. Í gærkvöld fórum við í ísbíltúr aldrei þessu vant; Þórir, Matta, Arndís og ég. Sem olli því að ég gat ekki bakað snúða eins og ég hafði ætlað mér. Líf var að ráðleggja mér í fréttalestrinum í dag, ég átti að taka svona hóstapásu og hósta út úr mér á eftir á eftir nafni einhvers manns, að hann væri skápahommi. Hóst, skápur, hóst. Ég kaus að gera það ekki. Merkilegt annars hvað Íslendingum þykir erfitt að segja Impregilo.
Svo verð ég bara að vona að Þórir verði stilltur á meðan ég er að heiman. Góðar stundir.