hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

Jæja, ég áskil mér rétt til að blogga bara á tveggja vikna fresti, er það ekki bara í lagi. Er á seinustu útvarpsvakt sumarsins. Mikið líður tíminn hratt. Flýg á morgun áleiðis til Bilbao á Spáni. Er að fara á ráðstefnu þar á vegum FSS - Gulla um einangrun kynvilltra Baska. Flest er nú til. Stoppa tvo daga í Kaupmannahöfn á heimleið og kem aftur heim 2. september. Partýinu á Hverfisgötunni sem vera átti um helgina hefur verið frestað. Þórir og Sigga munu búa saman í um viku þar til hann flytur á Tjarnargötuna. Vonast til að geta bloggað úti. Þetta kom svo brátt upp á og ég ákvað að skella mér. Það er svona með mig og ákvarðanir, ég víla þær ekki fyrir mér... Góðar stundir, ekki tími í meira blogg.

|