Bara komin helgi. Ég að ljúka vakt upp í Útvarpi og ekki farinn að hugsa svona langt.
Fer einn transer og borgartúr á morgun og svo annað transfer aðfaranótt sunnudags. Nóg að gera. Sjátáta-kerfið, úthrópunarkerfið hans Þóris er bilað. Ég verð því að tjá mig hér. Hefur hann ekkert að gera í vinnunni en að blogga og vafra á netinu? Mér er spurn. Ég er enn að hlæja síðan i hádeginu. Kollegi minn var í lesbíubrúðkaupi... Vinur bróður annarrar brúðar (veit þetta var flókið, skrifa það því aftur), vinur bróður annarrar brúðarinnar, spyr bróðurinn: Fékkstu hann stífan þegar þær kysstust?
Ég hef aldrei skilið hvað þetta er með karlmenn sem örvast yfir konum að láta vel að hvor annarri, fyrir utan að það er óeðli og hálfgerð brenglun.
Fór í keilu með Gígju og Ragnheiði í fyrrakvöld og svo á Kaffi Nauthól, það var gríðarlega gaman. Ég vann auðvitað í keilunni en Gígja hafði aldrei spilað áður. Seinna um kvöldið var undirbúningsfundur fyrir Laugavegsgöngu, og það á Kringlukránni en þangað hafði ég aldrei komið. Nokkuð stoltur af því. Ferðin verður óskaplega skemmtileg. Mamma og Sigga er komnar heim frá Spáníá. Það var víst rautt þema, mamma keypti fern rauð skópör. Ég held hún sé að stæla mig. Verð að rjúka. Góðar stundir.