hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

laugardagur, ágúst 27, 2005

Hefur einhver...

...þarna úti, sérlegan áhuga á því að festa tölur á jakka og skyrtur fyrir mig? Hélt ekki.

Snemma í fyrramálið mun ég horfast í augu við ótta minn og vonandi hlæja framan í hættuna... Meira af því síðar.

Er að hlusta á Glósóla og safna kröftum fyrir morgundaginn.

Sigga systir er í Kaupmannahöfn að leika við Þóri og Kidda. Merkilegt hvað systir mín er dugleg að hitta mína fyrrverandi. Leggur það á sig að elta þá uppi í fjarlægum Evrópulöndum.

Líklegast er ég ekki fyndnasti vinur ykkar í kvöld... Hlátur.

|

Bið alla þá...

...sem fengu einhvern bévítans Hi5 leiðindapóst frá mér, afsökunar. Hrein og klár mistök : )

|

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Vinn ég of mikið...

...ef mér finnst vinir mínir ómarkvissir í tali, hugsa um hve erfitt sé að klippa kommentin þeirra, og að mig langi til að biðja þá um umorða og stytta?

Í gær reiddist ég... Það gerðist líklega seinast í júlí í fyrra. Ég roðnaði líka í gær.

Í fyrradag grét ég svo úr hlátri, með Skrámi vini mínum og félögum.

Lenti í samræðum við Litla Lúður og Ólöfu sambýliskonu um daginn um vandann við það að eldast. Komum öll út úr skápnum með fullorðinsleg áhugamál okkar af því tilefni.

Flýg til Lundúna 11. september. Vetur á enskri grundu nálgast óðfluga. Lýsi hér með yfir að haustið er komið. Það er svo djöfull kalt...

Sigga systir væntanleg eftir nokkra daga.

Kveðjuhóf á Hverfisgötunni á næstu dögum.

|

mánudagur, ágúst 22, 2005

Déja vu... Ég vanafastur?

Mig langar að gera stuttmynd. Eftir að ég gerði mér grein fyrir að ég ber mig eins að í hvert og eitt einasta skipti þegar ég fer í sturtu; fyrst sápa ég vinstri öxl, háls, þá hægri öxl... langar mig að gera stuttmynd. Sú rannsóknarvinna mundi færa sönnur á mál mitt, það að 28 ára karlmaður er búinn að fara í svo margar sturtur um ævina, að honum er lífsins ómögulegt annað en að gera það á nákvæmlega sama hátt, oftast tvisvar á dag, alla daga ársins. Ég tek sömu skref, er jafnlengi, sömu handtök. Stuttmyndin væri byggð upp af tíu myndskeiðum af tíu sturtum, sem allar litu út fyrir að vera ein og hin sama.
Fyndnast er hvað ég er orðinn meðvitaður undir sturtunni...
Er HH að missa vitið?

|