Fjøldi vinkvenna, ósidlegt tilbod, nýbylgja, ákvardanir, ánægja og fleira...
Vini mínum finnst ég eiga of margar vinkonur. Hann segir ad tessu til sønnunar sé nóg ad lesa bloggid mitt. Er einhver tarna úti til í ad draga sig í hlé? Mér finnst ad madur eigi aldrei nóg af vinkonum.
Var ad koma heim af skralli med hinum heimsfræga Sigurd yogakennara. Opinbert tungumál kvøldsins var norska. Fórum á Rust, klúbb á Nørrebro, tar sem einhver nýbylgjuhljómsveitin var ad spila. Gott ef tessi tegund tónlistar heitir ekki bara drum n`base? Sem minnir mig á tad tegar afi í midjum heyskap ætladi ad kaupa Sinalco ofan í lidid, vatt sér inni sjoppuna og bad um Singalo. - Tad er svona tegar madur hættir sér inn á svædi sem madur ekki tekkir. Leid eins og elliheimilismat innan um flesta gesti stadarins og fannst ég vera ad villa á mér heimildir tar sem ég er ekki hardur áhangandi sveitarinnar. Eins og tad sé ekki nóg ad flestir teir tónlistarmenn sem madur hlustar á í dag, eru fimm til tíu árum yngri en madur sjálfur? Hvad um tad. Samt gaman. Dottadi undir tad seinasta á einhverjum ledurbekk. Ljúft.
Og já. Medan ég man. Var bodid á deit á bar hér í borginni í vikunni. Á medan ég pissadi. Hélt um typpid á mér á medan drengurinn, sem elti mig inn á klósett á kaffihúsinu, spurdi, hvort mig langadi ekki í kaffisopa med sér... Ég hélt (um typpid á mér) nú ekki og sagdi pent nei.
Alltaf skulu blogghygmyndir rydjast fram í hausnum á manni tegar madur er víds fjarri alnetinu... eins og á klúbbnum í kvøld. Eda voru hugmyndirnar bara svona gódar tví ég var í glasi? Held hátindi bloggferils míns hafi verid nád í kvøld. Án tølvu. Óskjalfest blogg.
Og var ad komast ad einu. Tad er sama hvada ákvørdun ég tek, ég verd næstum alltaf óánægdur med hana. Er bara tannig gerdur, vil ekki leyfa sjálfum mér ad vera ánægdur. Skilur einhver hvert ég er ad fara? Hvad er sálfrædiheitid á svona vanda?
Sú hugmynd er komin fram ad stofna til gledskapar á Ølstofunni ad kvøldi 22. desember. Hvernig leggst tad í fólk?
Jæja, klukkan ad verda fjogur ad morgni...
Sídar.