hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

mánudagur, júní 16, 2003

Ég er að gera flest annað þessa dagana en að blogga. Sagði Gulla að það væri aðeins meira að gera í minni vinnu en hans en hann sagðist bara vera klókari en ég, enda á betri launum, við að lesa Bösseliv. Frí í dag og á morgun. Sit heima að hlusta á Miles Davis og stefnan er líklegast tekin eitthvað út í kvöld þar sem ég skrallaði ekkert um helgina. Fór með Dagnýju og Arnari í labbitúr í rigningunni í dag og svo komum við hingað heim til að éta vöfflur. Fór svo með Sigga Má í Kringluna, keyptum bjór og einhver fataplögg. Heyrði líka í Þórunni, elskunni minni í dag. Það var svo langt síðan við höfðum heyrst. Ætla að kíkja á hana á Vínbarinn í kvöld. Verð að rjúka...

|