hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

miðvikudagur, september 10, 2003

Nóg að gera í dag. Næg verkefni hér og þar. Er uppi í Útvarpi á aukavakt eins og næstu þrjá daga. Þess á milli á Ölstofunni þannig að það er vinna dag og nótt. Dagar, nætur, vikur, mánuðir, ár eins og þar stendur. Partýið hjá Bjarna heima hjá Gulla um daginn var rislítið. Þeim mun meira grand verður eflaust kvöldverður heima hjá Gulla á tveimur klukkustundum í kvöld, á milli vakta. Ég er allt að því með fráhvarfseinkenni frá Gulla eftir alla samveruna úti á Spáníá í Baskalandi. Mér líkar vel á Ölstofunni, skemmtilegt fólk sem ég vinn með. Hef svo bara verið að dúlla mér, skúra og bóna heima og svona...

|