Er hamingjusamur......eigandi Superman nærhalda, þökk sé
Kristínu og
Kára. Tek mig ágætlega út í þeim, þó svo ég segi sjálfur frá.
Mig vantar áhugamál, fyrir þann litla frítíma sem ég á. Einhverjar uppástungur?
Vangaveltur um það að sumt fólk hefur aldrei nokkurn tímann farið á deit...
Komst á þennan líka brjálaða séns með ungri konu, klukkan níu á mánudagsmorguninn, í vinnunni. Hún bauð mér símanúmerið sitt en það afþakkaði ég. Sagði að hún gæti bara komið aftur seinna. Okkur var ekki skapað nema að skilja, eins og þar stendur. Við
Kári bróðir ályktuðum reyndar að hún hefði verið geðveik, blessunin, en hann varð vitni að þessu öllu saman. Hún sagðist ættleidd frá Bangladesh og sagðist enn fremur halda úti eigin sjónvarpsþætti á
Köbenhavn Kanal, sem nota bene er klámmyndastöð. Hún hafði áhuga á að gera ferðaþátt á
Íslandi með mér?!
HH og
Matthea eru á leiðinni til
Parísar í byrjun næsta mánaðar, og eiga fríið skilið. Þar verða engir ísbíltúrar heldur rauðvínssull og ostasmakkanir á bökkum
Signu, í fylgd
Ásdísar, betur þekkt sem frönskumælandi Físa. Spennan magnast... Ég á alltaf eftir að fara í
Louvre. Svo hef ég heldur aldrei skrallað í
París. Gaman.
Hvað á það að segja mér að lagið
More than Words með
Extreme minnir
Kára bróður á mig og lagið
Danielle með
Elton John minnir
Pétur bróður á mig?
Þórir þarf ekkert að kommenta á þetta... Líklegast hugsar svo
Matta til mín þegar hún heyrir
Mariuh Carey og það er alls ekki gott mál. - Hef liðið vítiskvalir í ræktinni seinustu daga því strákurinn í móttökunni hefur ekki spilað annað en disk með fyrrnefndri
Mariuh, aftur og aftur, dag eftir dag. Það er einmitt sama
Mariah og lét hafa eftir sér nýverið að mynd sín,
Glitter, hefði hjálpað Bandaríkjamönnum að komast yfir sorgina eftir 11. september... : )
Engin gefur sér gáfurnar, segi ég nú bara, eins og mamma hennar
Systu sagði alltaf.
Hefndist fyrir smámælta póstkortið sem ég sendi
Siggu systur frá
Malmö. Fékk frá henni illskiljanleg skilaboð í gær, það er, fðá Þiggu þyðtuð. ,,Þit á Kaffitáði og hugða um hvað ég á eftið að veðða bðún og þyt í þumað", sagði Sigga.
Síðar.