hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

sunnudagur, janúar 08, 2006

Kynþokki eða sjarmi minn...

...greinilega kemur og fer. Þessa dagana úða ég kynþokka, er hálfhissa ég sjálfur. Næsta vika hlýtur að verða slök.

Dagarnir hlaupa frá mér og ég sé varla dagsbirtu. Ritgerðarvinna til þrjú, fjögur á næturna, myrkur og kaffi langt fram eftir nóttu. En daginn er reyndar tekið að lengja.

Hvet ykkur til að skoða ævintýraleg blogg Hrannar og Roalds. Roald er á Indlandi eða var þar seinast þegar ég vissi. Hrönn er... einhvers staðarí heiminum á ferðalagi og bloggar alltaf í nýju og nýju landi.

Og já. Tölvur eru verkfæri andskotans. Það er ekki við mig að sakast, heldur tölvuna.

|