hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

laugardagur, mars 13, 2004

Gríðarlega var ljúft að fara á fætur á sjöunda tímanum í morgun. Það var nefnilega byrjað að birta. Hvílíkur munur. Gærkvöldinu eyddi ég heima, að hlusta á nýju uppáhaldsútvarpsstöðina mína, Stjörnuna, 93,4, eða var það 94,3? Rambaði inn á hana og hún kom skemmtilega á óvart. Sjallalallala, ævintýri enn gerast. Heyrði það og svo í Ellý, Vilhjálmi, Pálma Gunnars, Helgu Möller, Jóhanni, Hljómum og svona gæti ég haldið áfram. Íslensk nostalgía. Gekk frá þvotti, setti í vél og las mig niður úr blaðabunka sem hafði safnast upp. Þetta er orðið húsmæðrablogg að hætti Gnúpverjans. Skyldi hann vita af útvarpsstöðinni Stjörnunni?

|

föstudagur, mars 12, 2004

Tæknin eitthvað að stríða okkur, bíðum aðeins. Bros. Póstlagði í dag umsóknir í Háskólann í Hróarskeldu. Léttir. Gaman.

|

Það er ekki eðlilegt að verða þunnur af einum bjór. Kannski spilar fjögurra tíma nætursvefn þarna inn í? Morgunvakt að ljúka. Sá heimildamynd um Bayard Rustin í gær á kvikmyndahátíð með Þóri, Fríðu, Jóhanni, Svönu og Ingu. Þaðan fórum við á Kaffi List. Fínt. Gaman.
Svanhildur heldur að ég sé mest metrósexúal maður sem hún þekkir og hafi í raun fundið hugtakið upp. Ég sé ekkert kynvilltur, þetta sé bara fasi í leit minni að sjálfum mér. Hmmm, veit ekki. Þetta sprettur af því að í fyrradag sá ég alveg gríðarlega fallega stelpu; hef líklega aldrei séð fallegri konu. Átti bágt með mig og starði meira á hana en gleraugun sem hún var að reyna að selja mér. Hver veit, kannski verð ég nógu hugrakkur einhvern daginn til fara inn í skápinn? Annars eru metrósexúal menn dálítið til vandræða, þeir gera samkynhneigðum mönnum svo erfitt fyrir og flækja alla hluti til muna...

|

fimmtudagur, mars 11, 2004

Sól, sólarglennur í Reykjavík!
Hvernig set ég myndir úr símanum mínum á bloggið?

|

Morgunvakt, hryðjuverk á lestarstöðum í Madrid. Sá Glæsta tíma, uppsetningu Kvennaskólans í gærkvöld í Loftkastalanum. Fín sýning, góður leikur en í það lengsta. Fór á Café Cosy í gær með Þorvaldi og Jósúa. Svo er ég búinn að fá nóg af þessum rokbeljanda, vil fá logn takk. Það hefur verið slagveður í Reykjavík í viku.
Hinsegin bíó í kvöld, ég hefði viljað sjá mun fleiri myndir á hátíðinni.
Fór á Holtið í gær með Dagnýju sem á einmitt afmæli í dag, til hamingju elskan. Það hlýtur að segja ýmislegt um okkur og það við erum ekki fastagestir á Holtinu að okkur datt báðum í hug að fara með myndavél með okkur... Gerðum það samt ekki. Sátum ein í salnum allt hádegið. Maturinn var fínn. Þrír frakkar eða Grillið á Sögu, þar verður næsti hádegisverðarfundur Fréttastofunnar og Utanríkisráðuneytisins. Síðar.

|

mánudagur, mars 08, 2004

Púff, þreyttur. Héðinn, til hamingju með daginn. Og Erla Tryggva, súperpródúsent og skrifta, og Guðmundur Halldórsson, tvíburabróðir minn til skamms tíma, til hamingju með daginn líka þið. Og svo er jú alþjóðlegur baráttudagur kvenna; bestu kveðjur stelpur...
Afmælisdagurinn fór öðruvísi en ætlað var, seint í gærkvöld hafði honum ekki verið ráðstafað en það fór á annan veg. Útkall á Útvarpsvakt í hádeginu og fram til sex, þá tók Kastljós við til átta. Hef því verið önnum kafinn í dag en þakka ölum þeim sem hafa sýnt hlýhug og reynt að láta frá sér heyra, sá hringingarnar og skilaboðin. Takk fyrir mig.
Nú er ég hins vegar að niðurlotum kominn enda óhóflega margar áfengiseiningar innbyrtar á seinustu dögum. Dagurinn var annars alveg glimrandi, við Dagný vinkona í Utanríkisráðuneytinu höfðum ætlað út að borða í hádeginu á Holtið en þar sem hádegishléið var svo stutt og við bæði á leið í vinnu kl.13, þá ákváðum við að fara bara á stað með hraðari þjónustu en í svipuðum gæðaflokki, Mekong. Hann brást heldur ekki, við Dagný eigum líka dálitla sögu þaðan, frá því við bjuggum saman í Samtúninu; þá var þetta okkar hverfisveitingastaður, þegar við vorum ung og ástfangin. Hún af Skúla og ég af stráknum á efri hæðinni. Svo fór að hún krækti í Skúla en Jósa krækti í strákinn á hæðinni.
Af Mekong fór ég á fund á Grand Hótel um aukið jafnrétti kynjanna, sem svo skilaði sér í pistli fyrir Spegil. Fínt efni. Jafnréttisbölmóður og tuð; alltaf sígilt. Segi bara eins og Guðni, konur eiga að vera bak við eldavélina og hvergi annars staðar. Dagný sagði mér frá dagmæðrum sonar okkar en þær eru við það að gera uppreisn og segja Arnar óstýrilátan. Því getum við ekki samsinnt og höldum frekar að dagmæðurnar séu ekki að sinna starfi sínu sem skyldi; þær taka þessu líklegast sem hverju öðru skepnuhaldi. Öllum börnunum gefið á garðann um leið og svo skipt á línunni, í beinu framhaldi af morgungjöf.
Í gærkvöld lét fullt af fólki sjá sig á Ölstofunni eins og ráðgert hafði verið, og úr varð hin besta skemmtun. Fríða hækja kom hækjulaus en samt ekki með fylgdarmann eins og búist hafði verið við. En á Ölstofunni var sem sagt einvalalið. André og Ragnar gáfu mér disk með Joss Stein sem mér líst helvíti vel á, einhverjar rauðvínsflöskur fékk ég, og svo fékk ég forláta sundhettu, uppblásna, frá Möttu, Hlédísi og Arndísi. Þaðan fór ég með Möttu og Hlédísi að horfa á myndband langt fram eftir nóttu. Sáum fluffumyndina með Gwyneth Paltrow; olli dálitlum vonbrigðum. Sigga systir vakti mig svo í morgun með kókói og ristuðu brauði með osti eins og siður er á heimili foreldra okkar að gera fyrir afmælisbörn. Ljúft.
Árshátíð RÚV var mjög skemmtileg. Góður matur og gott kompaní, Geirfuglarnir að spila. Velti því fyrir mér í gær hvort ég hefði farið yfir strikið með því að narta lauslega og láta vel að kynþokkafyllsta fólki landsins en tel það ekki vera. Hef aldrei fyrr séð neinn fara á trúnó í pontu með hljóðnema í hönd og tæplega fjögurhundruð vinnufélagar að hlusta. Það var reynt að klappa manninn niður en allt kom fyrir ekki. Hann kom sínu á framfæri í garð vinnufélagans. Kvöldið byrjaði í kokkteilpartýi hjá Ellu Hirst; Jóa var deitið mitt og gott ef við vorum ekki bara nokkuð sannfærandi. Kvöldið endaði á Ölstofunni, hvar annars staðar, þar sem ég hitti Hauk, Ola Veigar og Orra Pál. Mjög svo athyglisverðar samræður um fordóma í bland við kynvillu. Prúðir piltar og viðræðugóðir. Kvöldinu þar áður hafði ég líka eytt á Ölstofunni, lenti í tímavél sem lýsti sér í því að tíminn frá miðnætti til fimm, hvarf, á meðan ég sat við barinn og drakk martini bianco ásamt Ölmu, Dögg, Edda, Jóni Guðna og fleirum og fleirum. Hverjum er ég að gleyma?
En sem sagt, dagur að kveldi kominn. Hér lýkur afmælisdagsbloggi og helgarfléttu. Ég orðinn tuttugu og tveggja en kvíði því ekkert. Síðar.

|