hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

sunnudagur, júní 10, 2007



Æ, hvað ég...

...hefði viljað vera fluga á vegg þegar þessir tveir ræddust við í Vatíkaninu í Róm; um fóstureyðingar, kynvillu og heilagt stríð annars þeirra gegn hryðjuverkum. Sá maður sem flestir jarðarbúa telja sig stafa mest ógn af, að leita ráða hjá æðsta yfirmanni kaþólsku kirkjunnar... Ansi mikill miðaldabragur á þessu. Óttist.

Hafi ég verið með bilharzia orminn, er ég ekki með hann lengur. Tók ormalyfin mín samviskusamlega fyrir nokkrum dögum, fimm hvítar töflur, á stærð við steinvölur.

Enginn gefur sér gáfurnar hugsaði ég, þegar það tók mig 60 mínútur að setja saman einfalda fatagrind á hjólum frá IKEA. Þetta skrifast á tækniteiknarann sem teiknaði helvítis bæklinginn, ekki mig. Ég var með smíðabeltið og allt, og ekki vantar mig verkvitið.

Sá kann ekki að bæta brók annars, sem er berlæraður sjálfur.

Ellefu dagar í Ítalíu. Úr danskri sól í sikileyska :)

Síðar.

|