hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

sunnudagur, apríl 13, 2008

Brjóst, stór

Spurði fósturdótturina Jódísi hvað hún ætlaði að verða þegar hún yrði stór. Hún ætlar ekki að verða læknir eða lögfræðingur, heldur með brjóst. Stór. Ætla að spyrja hana aftur að ári, nú eða kannski eftir tíu ár?

Frá því ég bloggaði seinast, stutt og laggott, hef ég vingast við miðaldra konur, eins og mér einum er lagið, og lært allt um gíslatöku og hvernig ég eigi að komast lífs af úr slíkum ófögnuði.

Og jú, ég er sólbrunninn. Danska vorið kom endanlega í gær...

|