Dragnót, Damien, druslur og góður dagur...
Damien Rice tónleikaupptaka og
Da Vinci lykillinn á dimmu ágústkvöldi og HH þrjóskast við að fara að sofa. Var að velta því fyrir mér hvað fær fólk til að kommenta. Fæ ég líflegust viðbrögð ef ég kem með miskunnarlausan svartan húmor og kaldhæðinn eins og er raunin hérna fyrir neðan? Kommenta fleiri ef ég geng fram af fólki eða kommentar þú ef ég gerist persónulegi bloggarinn?
Var minntur á það í gærnótt að Reykjavík er smábær í Síberíu og á stærð við eins lítra fiskabúr... Holl áminning og gaman að vera á útleið. Er svo líka í djúpum pælingum um það hverjir eru vinir manns og hverjir ekki... Og talandi um fiskabúr; átti svo góðar samræður við
Ragnar Afríkubúa á msn í gær. Þær voru reyndar allar í yfirfærðri merkingu og snerustu um fiskveiðar, botnvörpur, botnfiska, troll, frystitogara, net og svona. Merkilegt hvað hægt er að gera sig skiljanlegan talandi um fisk!
Skrallið í gær var skemmtilegt. Hitti meðal annars
Lovísu og
Óskar flugþjón. Hann sagðist sjá á mér að ég væri kynvilltur. Á móti langaði mig að segja honum frá grun mínum um alla þá sem gegna starfi flugþjóns en þar sem ég er prúður piltur lét ég það ógert. Mér finnst
Óskar líka ágætur.
Var að taka viðtal við lögregluvarðstjóra í vinnunni í dag þegar við lentum í þessu brjálaða útkalli. Sírenur og læti.
Ætlum í upphitunargöngu nokkur af Fréttaastofunni eitthvert kvöldið inn í Reykjadal, í heita lækinn. Styttist í Lónsöræfaferð Fréttastofunnar. Gaman.
Hvað fleira, jú pissaði með stelpu sem heitir
Hilda í gær. Og drakk fimm áfengiseiningar, sem ollu þynnku í morgun. Sem aftur leiddu af sér inntöku tveggja panodil-taflna. Síðar, nótt.