Ég er ofsóttur...
...af leikskólabörnum. Í tvo daga hef ég tekið fimmuna eftir rækt frá Laugunum kl.12.07. Ég ráðlegg fólki eindregið að forðast þá leið og taka þá frekar annan almenningsvagn eða fara milli borgarhluta síðar að deginum. Í gær hlupu þrjátíu leikskólabörn mig niður þar sem ég stóð með græna kortið og vagnstjórinn opnaði dyrnar. Öll komumst við inn fyrir rest, líka fóstran og fóstrinn. En nei, sagan er ekki búin. Haldiði ekki að fóstran biðji börnin um að syngja!?
Við rákum féð í réttirnar, í fyrsta og annan flokk, kílóið af súpukjöti hækkaði í dag... Mér var öllum lokið, gekk ill að einbeita mér að Mogganum og hádegisfréttum Útvarps. Komst við illan leik upp í vinnu.
Sama sagan endurtók sig í dag og mér leið svona eins og í déja-vu. Heitir það ekki annars endurlit á íslensku? Og talandi um slíkt, það kveikja nú varla allir á þessu en þó veit einhver hvað ég er að tala um... Helvítis sjónvarpið í helvítis gleraugnabúðinni þar sem auglýsingin með gagnkynhneigða parinu að kyssast; er farið! Gluggaútstillingu augnlæknisins hefur verið breytt. Sem þýðir að nú þarf ég ekki lengur að berja augum þetta blessaða par, með gleraugu, nota bene, þegar ég labba heim af skralli, upp Laugaveginn. Spólan er nefnilega búin að vera í tækinu hjá þeim í nokkra mánuði og þar hefur parið rúllað í sleik, mér síður en svo til ánægju og yndisauka. Ég hefði aldrei keypt gleraugu út á þessa auglýsingu. Á hinn bóginn er fyndið hvað maður er vanafastur, einhverra hluta vegna gekk ég alltaf utan í gleraugnabúðinni og leit alltaf upp á nákvæmlega sama augnabliki og sá nákvæmlega sama par, kyssast og kyssast og nudda saman nefjum og gleraugum. En því tímabili er lokið í lífi mínu.
Litum við á Ölstofunni í gærkvöld eftir útvarpsvakt.
Vigdís, Thelma, Þórir, Lena, Svana, Fríða, Ragnar, André á barnum,
Fabio og fleiri... Tók glæsilega mynd af
Lenu og
Vigdísi sem má sjá á myndabloggstenglinum hér til hægri. Nýir tenglar neðst lengst til hægri...
Sigga systir fer út eftir nokkrar stundir...stelpuskjátan. Síðar.