hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

laugardagur, febrúar 04, 2006

Heimurinn er að farast...

...vegna loftslagshlýnunar og átaka ólíkra menningar- og trúarheima. Hver eru viðbrögð forseta útkjálkans, á mörkum hins byggilega heims? Jú, skyr. Skyrið mun sigra heiminn. Það er aðeins spurning um tíma. Mér er svo mikið rórra.

Afmælisbarn dagsins er pabbi minn. Til hamingju, gamli...

Lífsklukkan min er öfug. (Það er ekki bara eitt heldur allt). Frá því ég kom frá Sri Lanka hef ég vaknað kl.6.00 á hverjum einasta morgni. Bregst ekki að kl. 6.02 er ég kominn niður í eldhús að hita kaffi. Gæðastundir. Er lífsins ómögulegt að eiga lengri nætursvefn en sex tíma. Þessu fer þó að ljúka...

Gleymdi alveg að hneykslast og bölsótast yfir helvítis andarnefjunni í Thames-fljóti um daginn, sem 23 milljónir manna eru sagðar hafa fylgst með. Meira að segja BBC sendi út beint. Geta fjölmiðlar ekki beint kastljósinu að einhverju öðru? Eða er það meðvitað val okkar firrtu og feitu Vesturlandabúa, að vilja frekar fylgjast með dauðastríði hvals, en að fá fréttir frá Palestínu eða uppbyggingu í Banda Aceh, sem allir eru fyrir löngu orðnir hundleiðir á?

Hef annars orðið var við vaxandi áhuga fólks á að læra brjóstaleikinn... Ég bið fólk lengstra orða um að sýna stillingu og leika hann ekki fyrr en ég kem heim í sumar.

Hvernig fór ég annars að, áður en ég eignaðist i-bookinn minn?

|

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Votts jor kontri?

-Thri gesses.
-Naes kontri, thri gesses?...


Ef tetta vaeri neytendapistill ta mundi eg fjalla i longu mali um arfalelegt Sri Lanskt hargel.

Fra tvi eg bloggadi seinast hef eg...
-etid ananas, mango og banana i kiloavis.
-kynnst Channa, Chandrika og Marik.
-notad moskitoeitrid Deeta sem after shave.
-gerst eigandi jafnljotustu ledursandala sunnan Alpafjalla, til tess eins ad losna vid solumanninn af handleggnum a mer, i bokstaflegri merkingu. Held teir seu raudir.
-verid vidtolslaus ur eirdarleysi i 12 klst. flugferd fra Sri Lanka til Lunduna.
-sofid afskaplega illa eftir tessa somu flugferd.
-verid stoppadur af Sri Lonskum loggum klukkan tvo um nott, vegabrefslaus, i tuk-tuk farartaeki og komist i smaklipu.
-sed villidyr af ymsum staerdum og gerdum og ad sjalfsogdu hlegid framan i haettuna.
-kennt vinkonum minum brjostaleikinn ,,Stifar hendur", vid mikinn fognud.
-kennt nokkrum bekkjarfelogum drykkjuleikinn ,,Eg hef aldrei", vid enn meiri fognud. Vissi ekki fyrr en daginn eftir ad i hopnum hefdi verid katolskur prestur og muslimi.
-tott fyndid ad Nancy fra Nigeriu viti engan veginn hvad hun er gomul. Einhvers stadar milli tvitugs og fertugs.

|