hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

mánudagur, júní 18, 2007


Þessi litla skotta átti tveggja ára afmæli í gær :) Hugsaði heim meðan á afmælisstórveislunni stóð í Öldubakkanum...

Frá því ég bloggaði seinast hef ég...

- verið skammaður eins og krakki.
- drukkið kampavín.
- undrast annars gott val vinar míns á vinum.
- keypt bók Khaled Hosseinis, Under straalende sol.
- ekki getað hætt að hugsa um bandarísku hommasprengjuna og þá vitsmuni sem hún lýsir.
- klárað Aldingarðinnn eftir Ólaf Jóhann.
- séð Babel með sambýliskonunni. Feikna góðar, bæði Babel og Íris.
- ekki haft tíma til að lesa dagblöð.
- étið sinnep.
- bakað rjómasúkkulaðiköku. Og nei, ég er vel haldinn, á allan máta.
- rifjað upp þegar ég hitti Ehud Barak í fyrra.
- haft samviskubit yfir að hlusta ekki á alla podcastana sem safnast upp hjá mér.
- ...eins og það hafi verið á þá hluti bætandi, sem maður hefur samviskubit yfir.
- farið í göngutúr, holdvotur í þýska úrhellinu um helgina.
- kvatt fósturdótturina Jódísi, sem hvarf til Íslands.

|