hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

laugardagur, apríl 05, 2008

Frá því ég bloggaði seinast hef ég...

- drukkið um það bil eitt rauðvínsglas á dag.
- reitt flestalla femínistana á Fróni til reiði; þeim fannst ég karlremba.
- fengið handskrifað, gamaldags bréf.
- millilent á stöðum í Finnlandi og Tyrklandi sem ég veit ekki hvað heita og mun líklega aldrei koma á aftur.
- steikt þorsk.
- fagnað vorkomunni.
- haldið upp á eitt lítið afmæli.
- farið á tónleika með frúnni í Marmarakirkjunni.
- og séð Portishead á frábærum tónleikum í KB Hallen.
- uppgötvað undarlegan veikleika kvenna fyrir skeggi.
- klárað End of Faith, sem þynntist eftir því sem leið á hana.
- steytt granatepli úr hnefa.
- séð Into the Wild í bíó.
- kynnst kynstrunum öllum af skemmtilegu og áhugaverðu fólki.
- farið í vinnuferð til Afganistans. Einstök og erfið reisa sem ég er enn að melta.
- ályktað sem svo, sbr. krækjurnar hér til hægri, að blogg vina minna séu að deyja.

|