hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

föstudagur, desember 21, 2007


Þetta myndband/lag, hefur bjargað geðheilsu minni undanfarna daga. Hvílík snilld...

- Mér finnst lykt hjá skósmiðum ákaflega góð.
- Er æskilegt að fara í djúpa naflaskoðun við árslok?
- Er nauðsynlegt að lesa bókina Catch 22?
- Ég er aftan úr svo grárri forneskju að mér finnst íslensk Green/Power/Enercy fyrirtæki hallærisleg hrákasmíð og hroðbjóður.
- Raunveruleikinn kom svo illa aftan að mér um daginn að ég tafsaði og tók andköf. Heimurinn er lítill.
- Horfði á Skrekk með Jódísi í vikunni.
- Er að ljúka við Hús úr húsi eftir Kristínu Mörju og veit ekki enn hvað mér finnst.
- Mér finnst Nóa konfekt forvont.
- Ég er smeykur við komandi skattframtöl.
- Er þessa stundina upptekinn við að greina á milli beinverkja og harðsperra.

|