hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

þriðjudagur, maí 15, 2007



Helgarpabbinn og bróðurdótturin gefa öndunum brauð...

Frá því ég bloggaði seinast hef ég...

- eytt samviskusamlega öllum pósti um að ég hafi verið tagged eða bjóðist að skoða myndaalbúm eða skrá mig í heimilisfangagrunn annarra netnotenda.
- ákveðið að fara til Argentínu, með Styrmi, í haust.
- hjólað með Kidda þar til mér varð illt í rassinum.
- glaðst allt að því meira en Jódís litla yfir að gefa öndunum brauð.
- sett keðjuna á hjólið mitt. Tvisvar.
- pússað rúður.
- verið sagður brosmildur.
- klárað Viltu vinna milljarð? Góð...
- haldið með Úkraínu í Eurovision.
- keypt flug.
- fengið góðar fréttir.
- verið afbrýðissamur.
- ekki látið úrslit Alþingiskosninganna koma mér á óvart.
- uppgötvað að ég er háður tölvupóstinum mínum.

|