hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

miðvikudagur, júlí 06, 2005

Í dag...

...gerði ég svolítið sem ég hef ekki gert lengi. Fékk mér jólaköku með rúsínum. Í vinnunni.

Dagurinn í dag er annars eins og seinust tíu dagar. - Ég hef 24 klst. til ráðstöfunar, 13 fara í vinnu, 6 fara í svefn og 5 í ferðalög í og úr vinnu, kaffisopa, púrtvín með vinum og rækt. Ágætis fyrirkomulag.

Vissuð þið að maður þarf ekki að kaupa sér áskrift að Stöð 2 heldur er nóg að leggja smjörpappír yfir skjáinn, og þá afruglast dagskráin?

Fékk annars skemmtilegt símtal í gær, sem hófst á þessum orðum: ,,Vertu fljótur að segja eitthvað fyndið því ég er alveg að fara að gráta!" - Þetta þótti mér vænt um.

Og úbs. Svo er ég að fara út eftir rétt rúma tvo mánuði...

|