hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

fimmtudagur, júní 23, 2005

Hitti mann...

...í dag sem sagði að sig langaði alltaf í áfengi þegar hann hitti mig. Er það gott eða vont?

Er annars að ljúka tólf tíma vakt.

Lífið þessa dagana er vinna. Vinna og aftur vinna. Sem er bara nokkuð gaman.

Síðar.

|

sunnudagur, júní 19, 2005

Ég veit það núna...

...en vissi ekki fyrir tveimur tímum, að The Perfect Storm, er óskaplega lélegt bandarískt sjónvarpsdrama. Var kominn með upp í háls af faðmlögum, brotsjó og amerískum hetjudáðum. Það gladdi samt mitt litla hjarta að sagan endaði ekki vel, þá fyrst hefði mér verið nóg boðið.

Hefur einhver séð sviðssetningu á réttarhöldunum yfir Michael Jackson? Drepfyndið.

Brúðkaup aldarinnar var stórkostlegt; eitt skemmtilegasta brúðkaup sem ég hef farið í, dansað, sullað og hlegið fram á rauða nótt, í góðum félagsskap.

Frá því ég bloggaði seinast, er ég orðinn einni lítilli frænku ríkari. Kevin Hall föðurbróðir...

|