hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

sunnudagur, júní 11, 2006


Frá því ég bloggaði seinast hef ég...

-sleikt sólina í tvo daga á þessari velsku strönd, í nágrenni Abersoch.
-pissað á mig, standandi í ökkladjúpum sjó, fyrir afmælisbarnið Lauri sem bað mig um það. Grétum úr hlátri.
-fengið að heyra að ég væri helvítis tík þegar ég hringdi í vitlaust númer.
-munað að orðið þynnka eða timburmenn er ekki til á ítölsku.
-borðað kúbanskt.
-lesið lærða grein um kynþáttafordóma í sjónvarpsþættinum Dallas.
-hugsað til frænda míns Sigga Tona sem varð sjö ára í vikunni. Held hann þekki mig betur en ég hann. Hann bað mömmu sína um daginn að hafa til kleinur því H frændi væri að koma heim og honum þættu svo góðar kleinur.
-talið daga.
-þjáðst í bresku hitabylgjunni. En ég kvarta ekki.

|