Góðan dag á Útvarpinu elskurnar. Gærkvöldið var notalegt, þá fórum við í heilsubótargöngu, ég og
Þórir sem er ígildi maka míns. Leiðin lá í Vesturbæinn,
Pétur gat ekki tekið á móti okkur vegna anna í próflestri þannig að við stefndum í kaffi til vinahjóna okkar,
Tröllsins og
Læðunnar (ljúf frekja sbr. DV). Gott kaffi og gott kompaní. Þaðan fórum við á Kaffibrennsluna, hittum
Óla Hjört.
Þórir fór heim og ég rölti á Ölstofuna þar sem ég hitti
Vigdísi Más, Lenu og
Bato. Kvöldið einkenndist sumpart af umræðum um viðreynslur og tækni sem hægt er að beita við hana, það er hvort heillavænlegra sé að konfrontera fólk og leggja spilin á borðið eða nota gamla trixið sem flestir nota og komast upp með, að hella í sig áfengi og hefja markvisst káf og reyna að koma kossi á viðkomandi. Heillandi aðferð, íslensk og sígild sem flestir hafa beitt óháð því til hverra og hvers þeir hneigjast. Síðar.