Þankagangur...
Það er myrkur á baðinu á Borups Allé því mér hefur þótt ég hafa öðrum hneppum að hneppa en að skipta um flúorperur. Þess vegna er ég ofsalega illa rakaður. Er að hugsa um breiköpp, svolítið um hjörtu og aðeins um krabbamein og kaldlyndi líka. Finnst líka skrýtið að mannskepnan skuli ósjálfrátt geispa ef hún les frétt um geispa, svo smitandi er fyrirbærið. Síðan ég bloggaði seinast er ég búinn að hlæja innra með með mér eftir að hafa óvænt rekist á fortíðardraug, ég er líka búinn að knúsa Doru, 86 ára, borða með henni smörrebröd og eiga frábæran eftirmiðdag sem ég á lengi eftir að muna. Við Íris erum enn íbúðarlaus en samt leigusala/vinkonu ríkari. Ég er enn að melta og endurupplifa lítil atvik frá því í Japan. Og ég er búinn að hugsa um hvað mér finnst gott að láta aðra um að tala, gerði mér grein fyrir þessu á kaffihúsi í dag...
Einhver spurði hvað ég væri að gera í Kaupmannahöfn. Ég er að gera það sama og ég gerði heima, bara búinn að flytja mig um set. Annar spurði hvað giftingarskór væru. Það eru fínir, svartir leðurskór. Arnar strumpur var í þannig skóm þegar foreldrar hans giftu sig fyrir tveimur árum, þaðan er nafnið komið.
Orð dagsins er flautaþyrill. Spurning dagsins er hvort það sé gaman í Brussel... Þekkir hana einhver?