Á engin páskaegg um páskana, jú, fékk bita hjá Þóri. Svo fór 1. apríl eiginlega fram hjá mér. Nema hvað ég las á bloggi vinar míns að þátturinn Nýjasta tækni og vísindi væri að hætta. Það fékk mikið á mig en ekki eins mikið á Jóhann, Þóri og Fríðu. Þeim fannst bara fyndið hvað mér var brugðið. Þetta er sem sagt elsti þáttur Sjónvarpsins sem enn er í gangi. Ég hef ekki enn fengið staðfest hvort Steindór var að ljúga á blogginu sínu eða ekki. Lifi sem sagt enn við nagandi ótta um það hvort Richterinn muni birtast mér aftur á skjánum eða ekki. Ekki það að ég horfi á þáttinn.
Ljúft að hlusta á Damien í vinnunni.
Kíkti í heimsókn til Ragnars í gærkvöld og fór þaðan á Ölstofuna þar sem ég hitti Björn Malmquist, Loga, Svanhildi, Gurrý og fleiri... Það lá við að ég drykki bara te, er að komast yfir áfengiseitrunina frá Lundúnum.
Hvað á maður að gera af sér um helgina?