Ég á í ástarsambandi...
...vid hjólid mitt (hjólid hans Kidda). Tetta er med lengri ástarsambøndum sem ég hef átt í (næstum lengra en ,,ástarsamband" mitt vid Kidda (sem á hjólid)). Skil ekki hvernig ég fór ad ádur en hjólid kom til søgunnar.
Mér líkar danskt líf mitt.
Gærkvøldid var øl med Chris á Bankorat og svo meiri øl med Thorhalli og Jonathan á ZooBar.
Mér er ekki ætlad ad muna afmælisdaga. Man afmælisdaga fjølskyldumedlima og afmælisdag Sigga Más, sem á afmæli á gamlársdag. Man hann bara tví ég hef gleymt honum svo oft. Til hamingju Siggi.
Ég er búinn ad finna búdirnar tar sem allar flottu jólagjafirnar eru. Á bara engan pening. Enginn peningur, engar jólagjafir... Annars eru Danirnir afslappadri í jólabrjálædinu en Íslendingar og er tad vel. Hef ekki enn séd eina einustu ævisøgu auglýsta, hér er merkilegt nok enn hægt ad hlusta á útvarp án tess ad verda brjáladur af jólalagapirringi, og streitan er ekki ad drepa Danina... Og tar sem ég er Skrøggur og lítil jólabarn, tá finnst mér tetta óskøp gott. Jólagjøfin hér í ár er yogamotta og svo Matador-thættirnir á DVD.
Tetta er Hédinn Halldórsson sem talar frá Kaupmannahøfn, tar sem útivistarbúdin Fjald og Fretid lokadi um daginn vegna vedurs, tegar tad kom slydda.