Ætladi til útlanda...
...í dag med hjákonu minni Írisi og unnusta hennar Kåre, nánar tiltekid til Malmø. En af tví vard ekki. Svaf eiginlega yfir mig. Tad kom bara annad í stadinn.... Deginum eyddi ég í Vanløse og er núna ad safna krøftum fyrir kvøldid. Ta er Dunstfest i Ungdomshusinu a Nørrebro og tangad ætlum vid Chris, Sigurd, Bjoggi og fleiri. Hefdi ég farid til Malmø hefdi verid skammt stórra høgga á milli. Thrjár heimsborgir á nokkrum døgum, Kaupmannahøfn, Malmø og Reykjavik.
Fór í gær í vidtal til SAS. Erfitt en gaman. Sat frammi fyrir karli og konu í klukkustund og thóttist hinn prúdasti, sem ég ad sjálfsøgdu er; skrúfadi frá sjarmanum og reyndi ad selja sjálfan mig. Hvarfladi oft ad mér, medan á vidtalinu stód, ad ég væri of hreinskilinn. - Sumum finnst ég nefnilega ofmeta hreinskilni. - Hugsadi aftur og aftur, verandi hreinskilinn... ,,Úbs, átti ég ekki ad segja thetta?".
Svaradi spurningum á dønsku um skapgerd mína, hvad fengi mig til ad missa mig, hvernig vinir mínir lýstu mér, hvad ég tyrfti ad bæta, hverjar væru mínar sterku hlidar og thar fram eftir gøtunum.
Tad snjóar úti í augnablikinu og tad hefur ekki gerst oft tad sem af er vetrar. Hér er eiginlega alltaf logn.
Thrír dagar thangad til ég kem heim. Tad stefnir í húsfylli á Ølstofunni á midvikudaginn tar sem thetta er heimkomuhóf fleiri Baunasleikja. Tarna verda fleiri ,,Danir" nýkomnir heim; Thorhallur, Tobba, Anna Helga, Ámi og hjákona mín Íris, fyrir thá sem vilja berja hana augum.
Og já, Jakob Holm, sem ég óskadi til hamingju med afmælid tann áttunda, á afmæli í dag, átjánda. Til hamingju, Jakob, enn og aftur...
Gaman. Sídar.