Kviknaði í borðtusku...
Dagur að kveldi kominn. Frábært matarboð hjá þeim heiðurshjónum
Heiðu og
Titti að vakt lokinni. Annað matarboð hjá
Kamillu blibbara annað kvöld, það er í mörg horn að líta. Og svo voru norðurljós í kvöld, í ágúst! Hvað er að gerast? Hitabylgja og norðurljós með nokkurra daga millibili.
Fór á hádegisfund með
Dagnýju sendiráðsritara í gær, hittumst í Laugunum og bárum saman bækur okkar af Fréttastofunni og Utanríkisráðuneytinu. Snæddum svo á þeim þekkta veitingastað
Bláfjallasal í Efstaleitinu og urðum ekki fyrir vonbrigðum. Það varð ég hins vegar á
Þremur Frökkum í seinustu viku; borðaði þar með
Gulla, Pétri, Jon og
Xavier. Ekki sáttur.
Dagný, Skúli og
Arnar fóstursonur minn fara út til Tókýó eftir nokkra daga og ætlunin er að heimsækja þau í byrjun næsta árs.
Svo er fólk að þyrpast til Danmerkur,
Matta fer eftir nokkra daga og þá fer
Sif fljótlega, fyrrverandi klinkan glaðbeitta sem festi eitt sinn gúmmíhanska uppi í barni með víravirki uppi í sér og greip til þess örþrifaráðs að klippa á hanskann og láta sem ekkert væri.
Ég verð líklegast nágranni
Írisar Ohlesen í Köben. Og þá ætlum við
Skratthea að hittast fljótlega eftir að við erum komin út.
Einkennilegt í alla staði þetta Framsóknarkonumál. Mjög einkennileg líka fyrirsögn Morgunblaðsins á vefnum í gær.
Kviknaði í borðtusku á eldavélarhellu. Ekki að þörf sé á slíkum fréttum, þetta hefur ekki verið gúrkusumar. Morgunblaðið lætur ekki að sér hæða. Ég held þeir eigi brunafréttir og árekstrafréttir á lager sem forrituð tölva setji á vefinn svo það líti út fyrir að einhver sé á fréttavaktinni. Alltof grunsamlegt að eldsvoðarnir verða allir lengst úti í rassgati, Dvergagili, Hamraseli, Mururima...
Vangavelta: Hverfur allt fólk af yfirborði jarðar þegar það byrjar í sambandi? Er það eðlilegt, skiljanlegt, æskilegt?
Annars er almenn fjallanostalgía í gangi, Lónsöræfin voru það einstök.
Fleira er ekki í fréttum; fréttir verða sagðar næst þegar tóm gefst til.