Deborah vaknaði milli bleikra satínsængurfata og geislar sólarinnar léku við hörund hennar. Þá kom hún til sjálfrar sín og mundi allt sem hafði gerst. Spurningar sóttu á hana. Hafði Tess bjargað fósturvísunum? Myndu Kerry-hjónin ættleiða barnið frá Guatemala? Kæmi stofa Lucyar til með að ganga? Var Steve staðráðinn í því að gerast kynhverfur og þar með snúa baki við öllu því sem hún hafði átt með honum? Bank, bank. Vikapilturinn. Hann opnaði hurðina varlega og hugðist draga frá gluggatjöldunum. það skyldi aldrei verða. Deborah sá hann strax fyrir sér í rúminu með Steve. Helvítis. Hún trylltist, þreif viskíglasið sem brotnaði í þúsund mola á hurðinni.
Frá því ég kom á
Hvolsvöll fyrir innan við sólarhring er ég búinn að éta á við kraftlyftingakappa. Er þetta bara ég eða gera allir þetta þegar þeir fara til mömmu og pabba? Hér á Hvolsvelli styttist í Þorrablót, þá er pabbi vanur að taka númer og dansa upp á borðum. Vel þess virði að panta miða. Síminn hjá nefndinni er 487 8097.
Kíkti á ömmu áðan og svo á lítil frændsystkin, tók ljóskusprett hjá
Birnu og
Pétri þar sem ég fullyrti að hliðar á teningi væru níu en ekki sex og ætlaði alls ekki að gefa mig. Sem leiddi til annarra ljóskusagna, þeirrar verstu sem er ekki einu sinni birtingarhæf hér.
Fer í fyrramálið með
Pétri stóra bróður áleiðis í bæinn í bíl, merktum
Kynbótastöð Suðurlands. Loksins hef ég verið uppgötvaður, hver veit nema ég hverfi til nýrra starfa á stöðinni? Hún er á
Selfossi, held ég, ef einhver þarf að finna mig.
Fram undan er vinna.
Áður en færslunni lýkur... Af hverju virðast sumir strákar í
Pönnunni um þessar mundir, svona flæktir í hugaróra um stráka sem e.t.v. gætu verið kynvilltir; skápa, mismunandi efnilega? Kann einhver svar við því? Er það meira spennandi af því það má ekki eða er litla fiskabúrið Ísland farið að þrengja að?
Og að öðru... Af hverju eiga hommar í sambandi svona erfitt með að vera trúir og af hverju þarf alltaf þriðji aðili að vera uppi í rúmi hjá þeim? Pæling, hugvekja sem í guðanna bænum ekki taka illa... Eru hommar
druslur, með sterkari kynhvöt en gengur og gerist eða vantar fyrirmyndir að hommapörum í samfélaginu? Einhver?