Var hjá...
...innrammaranum mínum á Hverfisgötunni. Hann er líka litblindur. Völdum saman ramma. Gaman.
,,Þessi hér á að vera sótsvartur."
,,Er hann ekki svolítið brúnleitur?"
,,Neinei, hann er svartur, sótsvartur. Það stendur hér."
,,Fínt. Fá hann."
Getur ekki annars verið að blöð á Íslandi hafi víkkað út skilgreiningu sína á frægu fólki? Gamli hundrað manna frægi hópurinn heldur ekki lengur athygli almennings og því er búið að hleypa hundrað nýjum inn, svo slúðurblöðin hafi eitthvað að fjalla um. - Svo sem engin vöntun á listaspírum þarna úti... Það er svo fyndið að það geta allir orðið það sem þeir vilja á Íslandi. Þú ákveður bara einn daginn að verða leikari, ljóðskáld, módel eða pistlahöfundur. - Fámennið.