hedinnha@hotmail.com +45 29 36 77 08

sunnudagur, júní 27, 2004

Þá er sumarið...

...hálfnað, sólstöður búnar og aftur byrjað að dimma. Alltof stutt sumur eins og vanalega. Fór að sofa klukkan sjö í morgun eftir skrall, sem byrjaði hægt en endaði vel; gríðarlega gaman. Það var að sjálfsögðu komin sól þegar maður tætti í beddann og þá er alltaf svo erfitt að fara að sofa. Vigdís, Héðinn, Þórir og Lena hófu kvöldið hjá Bjarna og Daða á Flókagötunni, prúðir piltar og gestir í hálfsjoppulegri íbúð, verð ég að segja. Framhaldið: Ásdís, Matta, Helga, Fabio, Kamilla, Brynja, Þórhildur, Jón Gunnar, Steindór, Orri Páll, Gísli, Gísli Darri, Jóhann og fleiri og fleiri. Hverjum er ég að gleyma? Ölstofan, Kaffibarinn, Ellefan, Hressó og svo framvegis.
Á föstudagskvöldið var ég boðinn í mat til Baldurs og Felixar. Gaman. Gústi, Pétur, Ásgeir, Jón Þór, Gummi og gestgjafarnir. Gott kompaní og matur. Gott ef þetta er ekki mín skemmtilegasta færsla frá því ég byrjaði að blogga... úff. Maður getur víst ekki alltaf skrifað prósa.
Annað í fréttum, Gulli í Köben, Héðinn og Þórir aftur farnir að talast við eftir vikuhlé.
Plön fyrir haustið eru breytt, enginn skóli í Danmörku. Allt opið og óljóst með haustið sem sagt. Spennandi tímar fram undan og Héðinn til alls vís því hann er jú svo flippaður og lifir á ystu nöf. Síðar.

|

miðvikudagur, júní 23, 2004

Hef aldrei...

...kynnst fámálli manni en þeim sem ég fór með í bíltúr um Suðurlandið í dag. Vinur Monicu vinkonu sat aftur í og mælti ekki eitt aukatekið orð, eða kannski voru þau fimm, allan daginn. Monica sagði hann ekki vera feiminn heldur bara mann fárra orða. Væri það ranglátt af mér að kalla þetta félagslegan vanþroska fullorðins manns? Hlýtur alla veganna að hefta hann, úff.
Gangan í gærnótt var unaður. Lögðum í hann úr bænum eftir viðkomu á Select um eittleytið. Vigdís, Arndís, Hlédís, Matta, Gulli og Héðinn. Vígði nýju göngustafina. Gengum upp í Reykjadal fyrir innan Hveragerði. Þar skelltum við okkur í heita lækinn þar sem við flatmöguðum í þessum fína hyl og skáluðum í freyðivíni á meðan sólin kom upp. Blankalogn og blíða. Tókum fáklædd á sprett í mýrinni og veltum okkur upp úr dögginni. Heitt kókó, snúðar og kleinur til að fá í sig yl og næringu. Eftirminnilegar sumarsólstöður það, svona eiga þær að vera. Vorum komin aftur í bæinn rétt fyrir klukkan sjö í morgun.
Svaf í þrjá tíma þar til við tók þessi sérstæði bíltúr sem endaði austur í Vík.
Er hægt að panta þessa sól eitthvað lengur? Síðar.

|

mánudagur, júní 21, 2004

Sumar...
Fjöldi fólks varð vitni að fáheyrðum atburði í Laugardalslaug í dag þegar karlmaður á tuttugusta og áttunda aldursári, renndi sér tvær salibunur, einn síns liðs, í vatnsrennibraut sundlaugarinnar, og hafði bæði gagn og nokkurt gaman að tiltækinu. Þessu næst lagðist hann í bleyti í pottunum og brann í sterkum geislum sólar. Dagurinn í dag var einn sá besti það sem af er sumrinu. Nú eru líka sumarsólstöður og allt stefnir í næturbrölt í Reykjadal, þessa stystu nótt ársins, í góðum félagsskap. Ætlum að ganga inn í dalinn eftir miðnættið og baða okkur í heitu lauginni. Stefnan sett á að vera komin í bæinn snemma í fyrramálið.

Skil greiðendur afnotagjalda vel þessa dagana, þá sem ekki hafa gaman að íþróttum í sjónvarpi. Steininn tók úr í gær þegar sjónvarpað var formúlu, frjálsum og fótbolta. Mér ofbauð.

Bendi á blogg Roalds og Þóris. Báðir virðast vera í aldurskrísu og djúpum pælingum. Athyglisvert.

Kaffibrennslan með Vigdísi í gærkvöld til að ræða menn og málefni. Vegamót í hádeginu í dag með Þorvaldi til að ræða, jú, mikið rétt, menn, málefni og menn.

|